|
|
21.05.2007 16:36:28 / loverose
»
20.04.2007 00:26:07 / loverose
GLEÐILEGT SUMAR ;D
Vá hvað það var bara ýkt mikið komið sumar
þegar maður vaknaði í morgun,ýkt gott veður...fór bara beint
út á pall í náttfötunum og lagst á bekkinn og lét sólina hlýja
mér (það var í alvörunni sól) hehe. En það er nú ekki aaalveg
komið sumar í mínum augum,það er eiginlega ekki fyrr en það er
eitthvað farið að sjást í grænann lit úti og fótboltaleikirnir
byrjaðir. Fuck hvað ég get ekki beðið.
Ég ætla sko að reyna mitt allra besta til að
láta þetta sumar verða það allra besta hingað til..og þið megið
alveg hjálpa mér við að reyna það . múhú !!
Smá summerSyrpa handa ykkur :

-

-

-

-

-

-

-

-

-

-

-

-

-

-

-hahaha
-
Árshátíðin í gær = nokkuð gaman.
-
Lóan mætti á svæðið...Haaaanna hvar ertu
;(
-
Eignaðist lítinn frænda í dag,Helena frænka fékk
lítinn prins =)
-
Fjölgaði líka í hinni familíunni minni um
daginn..lítill Morhtens kominn í heiminn.
-
Hvað skal gera um helgina?
-
Nenniði að finna sumarvinnu fyrir mig.
-
ooog nenniði að bjóða mér til útlanda.
-
1.vika eftir af skólanum fram að
prófum.
-
Sumarfrí= 11.maí ;D
Njótið helgarinnar.
»
09.04.2007 22:22:39 / loverose
Dont belive it,fríið að taka enda og brjálæðin að taka við !
dúddamía.
Við skelltum okkur slatti af liði í bústað uppí Hraunborgum,
vorum svona um 20 þegar mest var af liði. Fór á fimmtudaginn með
Veigari eftir fermingu hjá Guðjóni og kom heim á laugardaginn með
Röggu og fór þá beint í aðra fermingu. En þetta var bilað
stuð,skelltum okkur á dansiball með ÁmótiSól á föstudaginn
einhverstaðar rétt hjá Selfossi, það var helvíti gaman og ég get
alveg fullyrt það að við Sandgerðingarnir eignuðum okkur dansgólfið
bókstaflega,heheh ....Strákarnir eignuðu sér nú reyndar meir en
bara dansgólfið því þeir ætluðu sér að eiga salinn bara í lokin,og
gerðu það nú nánast. Fljúgandi stólar og skóflur, þetta toppaði
kvöldið ef ekki bara helgina að þeirra sögn og fengum við að heyra
hetjusögur næstu klukkutímana eftir ballið. hehehe þið eruð lúðar :
) En þetta var ýkta fín helgi og helv gaman að eyða páskunum með
öllum þessum vitleysingum.
Skólinn að byrja aftur á miðvikudaginn og nú þegar er búið að
setja 2.erfið próf á fimmtudaginn, svo ég verð bara að fara byrja
læra á morgun, sem ég á mjög erfitt með að koma mér í :/
  
Er búin að setja inn myndir frá helginni, nenni
ekki að rita neitt meira niður í bili.
Pís.Ástrós Jónsdóttir.
»
27.03.2007 14:51:14 / loverose
Þrír dagar í páskafrí,brússíbrússey ! Ég get ekki beðið
eftir að fara gera eitthvað annað en að hugsa um lærdóm í smá tíma.
Reyndar eiginlega bara svona 2dagar í frí, starfshlaupið á
föstudaginn, and we skal be purple.
Hvað á ég að tala um...
Var alein á heimilinu um helgina sem var fínt.
Föstudagurinn byrjaði ótrúlega vel hjá mér þar sem ég sat EIN
hér að horfá xfactor, það voru allir eitthvað agalega busy og voru
ekkert að hugsa um mig. En datt síðan á Hjálmar og Gísla og þeir
sárvorkenndu mér, þannig það var farið heim og tekið í spil ásamt
henni Karen Helgu minni. Og já Hjálmar vann ekki, hann vildi að ég
kæmi því sérstaklega á framfæri.
Á laugardaginn var ég svo að "vinna" á "Stofnfundi
Stuðningsmannafélags Reynis" ,vó...en allavega ,vorum bjórverðirnir
á svæðinu, skráðum þetta allt niður krakkar mínir og sum ykkar eruð
í agalega slæmum málum, haha..spurning Ásdís um að taka upp
meðferðarheimilið sem við ætluðum að stofna þú manst,við
Stafnesingarnir..hahaa,ef við vorum ekki hálfgeðveikar. Vorum þarna
til svona hálf 10 þá hennti ég og I-fíflið okkur í Keflavík, síðan
hringdi brósi og ég átti að mæta heim og opna fyrir honum og
nokkrum,til að horfá einhvern leik. Þetta endaði með heljarinnar
teiti, held það hafi verið fólk frá öllum stærðum og gerðum
hér,hehe...það var svosem ekki gert mikið annað en að tala um
fótbolta/Reynismál í hverju einasta horni.
Yndislegt,sólin kíkti á okkur í
pottinn í gær. Égelskasólina!
Ætla setja inn þær örfáu myndir sem ég tók um helgina.
Ótrúlega tilgangslaust blogg, eiginlega bara svona til að lostna
við vælið í Khelgu,hehee.
Sælar.
»
12.03.2007 20:28:41 / loverose
Góða kvöldið.
Jæja þá er maður búinn að fara í sína fyrstu bústaðarferð þetta
árið..og vá hvað það var gaman ;D Vorum þarna endalaust mörg saman
með tvo bústaði einn var svona partei bústaðurinn og bústaðurinn
sem við vorum í var bara svona tjill bústaður. hehe. Ég og
Ragga fórum af stað um 6 á föstudaginn,fórum að versla og náðum svo
í Khelgu í Rvk og það byrjaði vel,ætluðum aldrei að finna heimilið
hja ömmu hennar og afa,enduðum einhvertaðar í óbyggðum,allt dimmt
og vissum ekkert hvar við værum, en við redduðum okkur út úr því.
Þegar við komum uppí Húsafell komum við okkur bara fyrir og
skelltum okkur svo í teiti í hinn bústaðinn,þar var bara sungið,
spjallað og hlegið. Og vá þegar ég segi hlegið þá meina ég hlegið
með stórum stöfum, haha ég,Khelga,Hjalli,Gísli,Atli og Haffi fengum
eitt það alvarlegasta hlátursskast sem ég hef fengið, guð minn
góður náði ekki tímanum hvað þetta stóð lengi yfir en ég var
allavega farin að hágráta og komin með illt í lungun og það munaði
engu að Atli hafi ælt úr hlátri. Hahaa man samt ekkert afhverju í
anskotanum allir fengu þetta kasst. Mjög líklega útaf Gísla þar sem
að maður gerði lítið annað en að hlægja af honum alla ferðina, haha
þú ert alveg yndislegur ;D Skelltum okkur svo yfir í rólega
bústaðinn um 5, ég, Ragga og Hjalli, vorum samt alveg skíthrædd því
við vorum búin að frétta af skrúðgöngu músanna. haha, Hjalli fræddi
mig og Röggu um sjúkrakassann í húsinu. Ætluðum svo að fara að sofa
en þá kom Gísli og keyrði á húsið,næstum ...hahah,hann var bara að
prófa skurðinn smá.
Á laugardaginn var bara eitthvað tjillað yfir daginn, ég reyndi
að læra smá og Gísli sá um heimillisverkin,hehee..! Svo ákváðu
strákarnir (Hjálmar+Gísli) að vera svo agalega myndarlegir og elda
fyrir mig,Khelgu og Röggu og vá hvað þetta var yndislegur matur,
svart kjöt og fiskikjúklingur,hahah grín sagði þetta bara
til þess að fá Hjalla til að verða brjálaðann,heheh vá hvað hann
elskar mig mikið ;D sjáiði
Hún
Hún vælir, hún grætur
Hún grætur ekki vosbúð og vesældir
heimsins
heldur sín eigin vandamál,flís í
putta.
Hún syngur, hún hlær
Hún hlær ekki af heimsins fyndnustu
mönnum
heldur sínum eigin bröndurum og
bulli.
Hún er sjálfselskur vælukjói
sem mér þykir vænt um.
Haha,ótrúlega fallegt ástarljóð sem ég fékk
hjá honum, ætla ekki einu sinni segja ykkur hvað hann sagði um
neðstu línurnar...fkn i . hehe.
En jæja þegar matarstundin okkar var búin birtust
Fannsi og Davíð, þeir gátu ekki verið svona lengi án okkar og
brunuðu því frá Sandgerði í Húsafell, spjölluðum nokkra stund við
þá og síðar birtust Pétur og Rúnar,þeir meikuðu heldur ekki alla
vegalengdina frá okkur. Við skelltum okkur svo yfir til
parteigemlingana og vorum þar til svona 3-4,henntum okkur þá yfir í
rólegheitinn,fórum í pottinn og eitthvað tjill bara..þangað til að
GísliPOWER mætti og hélt sögustund fyrir okkur,hahaa .
hehe ætla setja nokkra punkta sem ég man, svosem
ekki gaman að lesa þetta nema þú hafir verið þarna:
-
Gísli reyndi að klessa á bústaðinn.
-
Ég fékk alvarlega flís í puttann.
-
Ragga í spæjaraleik um Gísla í
pottinum.
-
Ég fösst uppá lofti.
-
Fundum upp mýslupils,jafnvel
regnhlíf.
-
Brynjar mætti í lopapeysu.
-
Atli og Viddi skeeelltu sér í
gólfið,hehe.
-
Gísli hefði dáið hefði ég ekki bjargað honum
frá falli sófans.
-
Gísli : Live a little (oná Pétri)
hahaaha
-
Aron ofurölvi, hva 22 bjórar? hehe
-
Dansvídeoið með Gísla,óguð;D
-
Gísli fékk sér smá sinnep.
-
Jónas Dagur?
-
Gísli var svolítið séður,whu
?
-
afasöngurinn hans Hjalla.
-
Hjálmar leiður á símanum,skellti honum
bara í kókglasið.
-
Hjalli og Gísli fóru í trukkaferð með Fannsa
þótt hann væri sofandi,HAHA.
-
Hrjótukór.
Yndisleg helgi með yndislegu fólki
,hehe...endurtökum þetta einn daginn.
Komnar inn myndir. en plís tjáið ykkur eitthvað í
skoðanir,fátt leiðinlegra en blogg án skoðana,he.
Pís. Ástrós !
»
05.03.2007 16:33:19 / loverose
Góðan daginn.
Vá ég viðurkenni það bara hér og nú að ég er mjög lélegur
bloggari,eða þá að ég hef bara ekki tíma,eða nenni þessu ekki. Held
það sé bara allt þetta. Þið afsakið mig bara =)
Jæja,alveg bilað mikið að gera í skólanum hjá mér núna, gæti
alveg hlupið út og öskrað, því ég nenni þessu stundum svo engan
veginn,próf eftir próf og blabla. Var t.d í tveimur prófum í dag,og
þurfti að skila asnalega erfiðu verkefni, sunnudagurinn
minn einkenndist semsagt af bókalestri,ví. Eitt próf á
morgun og dagana eftir það þarf ég að liggja í sögubókum því á
föstudaginn þarf ég að skila stórri ritgerð og flytja fyrirlestur.
Ég veit ekki alveg hvernig ég á að komast yfir þetta,en þetta er jú
allt bara spurning um viljann,riiiight? Svo er ég líka svo agalega
jákvæð manneskja,heha.
Hljóðneminn á miðvikudaginn og Hljóðnemaballið á fimmtudaginn.
Ég ætla að fara á keppnina en sjá til með ballið,nema ég verði svo
ógeðslega ýkt dugleg að ég verði búin með ritgerðina og
fyrirlesturinn, sem ég set svona 3% líkur á.
"Svafstu bara svona sofandi"? ;o haha.
Já 5.mars í dag, og fyrir 47.árum fæddist bestasta mamman,híhí.
Til hamingju með daginn aftur gamla mín...
úh, sit hér í tjillinu með "Lífið er Yndislegt" á fóninum, og vá
það lag fær mig alltaf til að hugsa að ég standi í brekkunni eftir
flugeldasýninguna að syngja þetta lag, með öllum hinum. Yndislegt
alveg. Hehe!
Helgin hjá mér: Á föstudaginn kíktu Karen Helga,Magga,Linda,Árni
og Hjördís og við horfðum á X-factor, Og halló er ekki allt í orden
þarna hjá þessu liði? haha vá hvað við hlógum mikið. Einar Bárða
bara í táraflóði og síðan bættist kynnirinn og felldi nokkur tár
með honum, eða ekki einu sinni nokkur, því hún gat varla klárað
þáttinn því hún var svo útgrátinn,haha frekar slæmt þegar kynnirinn
getur ekki einu sinni höndlað að keppenda sé vísað heim.
Á laugardaginn ákvað ég og Silja að kíkja aðeins á sjoppugelluna
og komumst við að því þar að við höfum ótrúleg áhrif á
manneskjuna,haha ...fórum síðan með henni heim og horfðum á hana
gella sig upp fyrir djammið,hehee og já ef ykkur vantar ráð til að
gíra ykkur upp, þá er það bara að taka nokkur spor fyrir framan
sjálfan þig,það virkar feitt. HEHE! Leið okkar lá næst heim til
ÖrnuVölu og Vidda þar sem við vorum frekar lengi,hennti síðan
Ásdísi í Keflavík og skutlaðist svo með eitthvað lið.
En jæja segjum þetta gott,farin að éta kökur...
Er að henda inn myndum frá helginni,þið kíkið á það..svona þegar
þið eruð búin að skrifa í skoðanir,thanks!
Pís.
»
20.02.2007 14:17:21 / loverose
Gúd day.
úllalla sprengidagur í dag,sem þýðir hvað? he. Bolludagur í gær
og ég fékk enga bollu þar sem það var enginn heima til að baka
þær,buhu. Og svo öskudagur á morgun,og ekkert frí í skólanum eins
og var alltaf í grunnskóla,þetter nú meira ha.
Helgin hjá mér fór í það að vera eiin heima,he mam og pab
skruppu til Köben. Helgin var nú samt agalega róleg...Á föstudaginn
horfðum við stúlkurnar bara á X-factor hér heima og kíktum svo smá
rúnt í Sandgerði ! Á laugardaginn fór ég í mat til
Þórdísar,eurovision til Ellu,spil til Fannsa og svo nokkrar mínutur
á trix & hpunktinn. fórum síðan í Sandgerði þar sem K.Helga
ákvað að ræna ketti,haha heimska barn. Tjah síðan var bara farið
heim að sofa.
Á sunnudaginn svaf ég svo smá svona lengi og fór svo að lesa
undir próf,ekkert grín þessi skóli þessa daganna,endalaus lærdómur
! en já um miðnætti fór ég svo og náði í gömlu á flugvöllinn,fékk
nóg af fötum frá þeim hee ;D
Þemadagar að byrja á morgun,og eitthvað helvítis bull í
gangi,ég,Ragga og Karen Helga vorum bara ekkert á töflunni í dag,þá
var víst einhver bilun í gangi í tölvunni þegar við skráðum
okkur ! Svo ég veit ekkert í hvaða hópum við lendum. En þetta
byrjar semsagt á morgun og er fram á föstudag,sem er mjööög
gott,þar sem ég er komin með uppí kok af námsbækum. Held það sé svo
eitthvað glæsiball á föstudaginn og býst ekki við því að það sé
mikill stemmari fyrir því,frekar en fyrri árin.
Hey hver ætlar svo að fara bjóða mér í bústað ? veit allavega að
Fannar ætlar ekki að gera það,thanks !!!!
Jæja spá í að rölta yfir til brósa og ræna bílnum hans þar sem
hann er einhverstaðar í útlöndum,og spá í að ræna barninu hans bara
með ;D víhí.
Hafið það gott,kv.Ástrós Jónsdóttir.
: )
»
09.02.2007 20:00:13 / loverose
iii whats going on....stafirnir alveg í bullinu hérna,vona þetta
komi nú samt inn !
Jæja þetta blessaða ýkt mikið umtalaða froðuball er
búið,hehe....það var á miðvikudaginn og virðast margir hafa verið
agalega ósáttir með þetta ball,ég skemmti mér nú samt mjög
vel,þrátt fyrir litla froðu. Það var alveg greinilegt að þetta
froðushit fór eitthvað úr böndunum,var bara mest svona í einu
horni...en ég og Ragga vorum svo agalega svalar að við tróðum okkur
bara inní hópinn undir froðunni sem einkendist af
sveittum,blautum,berum að ofan strákum,hehehe...og uppskar ég
nokkra marbletti eftir þessa troðninga,en þetta var bara gaman,ég
náði allavega að dansa af mér rassgatið,búmbúm ! Froðan í Búlgaríu
var þannig að þegar maður labbaði frá henni þá var hún enn á manni
og maður þurfti í raun að "henda henni af sér" ,annað en þarna á
Trix þá blotnaði maður bara strax og froðan gufaði upp,en ég held
það sé ekkert annað en eðlilegt þar sem þetta var fyrsta ballið af
þessari gerð á landinu,þetta verður betra með tímanum,vona ég :
)
Ritgerðarhelgi framundan hjá mér....eða frekar svona ritgerð sem
ég á eftir að byrja á á sunnudagskvöldið,he ? Og vá hvað það verða
pottþétt próf á hverjum degi næstu vikurnar útaf þessu asnalega
miðannarmati,þá hrúga þessir kennarar prófum og dóti á mann ,og
helst alveg allir á sama tíma ...bara til að hafa eitthvað slæmt um
mann að segja,mjehe.
Byrgið,Breiðavíkurdrengirnir,rán í Sandgerði..hvert er heimurinn
að stefna,eða bara litla Ísland? he..það var víst bara löggulíf í
litla Sandgerðinu í gær,maður komst ekki út úr bænum án þess að
lenda í lögreglunni,sem athugaði hvort þú værir nokkuð bófinn með
hvítu grímuna sem rændi búðinni,haha...hálf asnalegt,maður rænir
ekkert búð í Sandgeri,og ekki rétt fyrir 7 á kvöldin,miklu betra
klukkan svona 5. ! hehaa grín,en litli kjáninn er ekki enn
fundinn,sem er vesen.
Jæja ætla skella mér fyrir framan imbann og tékka á
X-factor,horfa á hana Ellý reyna að koma upp úr sér orði,sem hún á
frekar erfitt með að gera..greyið. haha. Svo ef þér langar að bjóða
mér á deit eða eitthvað álíka spennandi í kvöld,þá er ég með
símann..þar sem að Ásdís er orðin harðgift og flutt í Reykjavík,að
minnsta kosti í nótt..hálfviti! HEHE!
Hafið það gott um helgina krakkar mínir,njótið þess að vera til
og brosið framan í manneskjuna sem þið mætið,MHEEhe ! Og Fannar,ef
þú ert að fara að taka þátt í einhverri bjórdollukappakstri,þá er
eins gott að þú vinnir það vinur,engan helvítis ánskotans
aumingjaskap !!!
PÍS OUT !!!
»
30.01.2007 00:17:51 / loverose
Góða kvöldið...kæru vinir ! he. he.
Jæja helgin yfristaðin,og mánudagurinn að líða hjá ...sem er
svosem ágætt,þar sem mánudagar eru alltaf agalega sjúskaðir,og ekki
bætti þetta suddaveður eitthvað úr mánudagsstemmingunni !
Anyways,ég tók því bara rólega um helgina,var reyndar ein heima
alla helgina,sem er alltaf voðalega nice,að vera smá húsmóðir í
eins og 2.daga og ég tók þessa "húsmóðurshelgi" með trompi..þar sem
ég ákvað að taka 3.börn að mér líka,eeha..var að passa hjá brósa
allan laugardaginn og fram á sunnudag,það var fínt..allir hinir á
mummys en ég hafði það nú samt alveg gott,hehe..horfði bara á dvd
með Möggu,og fór svo að sofa,stillta stúlka.
æj skóli skóli skóli..nóg framundan þar sem að ég þarf að skila
tveim frekar stórum ritgerðum á næstu vikum,eða einni eiginlega
bara í næstu viku...ein 7-10 bls. víj,I looove it !
Stórleikur á morgun Ísland vs.Danmörk í 8.liða úrslitunum ! og
ég er orðin stressuð,he langar svo að við komumst lengra...alla
leið jafnvel,vá ætli okkur Íslendingum yrði þá öllum boðið í veislu
hjá Óla Ragga Gríms? pottþétt.

"Froðuball" er eitthvað sem maður les á öllum síðum eða heyrir
alla tala um í skólanum þessa dagana,mm það verður semsagt
FS-froðu-teiti á Trix á miðvikudaginn næsta,sem er töff...þar sem
þetta er geeeðveikt stuð,hehe eða að minnsta kosti var það
stuð í Búlgaríu,alltof gaman ,kanski aðeins öðruvisi að skella
sér á svona ball í sólarlandi heldur en á Íslandinu kalda,eeen það
er náttúrulega hugsað fyrir öllu,svo það verða víst hitablásarar og
handklæði í boði,hehe ég held þetta verði gaman,smá tilbreyting frá
þessu venjulega ! =)
   
Oh..langar aftur núúna
!
Hef þetta ekki lengra núna..ætla fara koma mér í
háttinn.
Hafið það gott..Pís,Ástrós!
»
25.01.2007 00:28:10 / loverose
vá hvað ég er að fatta að ég er ógeðslega mikið "ekki-inn" í
dag..ennþá slefandi á einhverri blog.central bull síðu,meðan allir
hinir eru ógeðslega svalir með bloggar.is eða 123 ! hehe,ég
einfaldlega nenni ekki að búa til nýja síðu,eitthvað svo mikið
vesen...og ég er svo aaagalega lítið fyrir vesen. svo þetta verður
bara svona...í bili allavega.
En jæja...eins og gerist á svona 2.ára fresti þá gerumst við
íslendingar ýkt miklir handboltaáhugamenn og getum ekki talað um
annað en íslensku handbolta-folana okkar sem eru alveg að meika það
þessa stundina,ég er ein af þessum íslendingum sem er alveg
ótrúlega spennt yfir þessu,það er eitthvað svo agalega
spennandi við þetta...og hvað þá þegar okkur gengur svona vel,maður
fyllist allur þjóðarstollti,hehe.
Atli sögukennari setti veðmál í gang í tima í dag,lét okkur
hvert og eitt skrifa á blað hvernig við hélduð að leikurinn
myndi fara, Ísland-Túnis (sem var í dag,og við hirtum stigin
þar að sjálfsögðu) en já hann lét alla sögu hópana sína gera þetta
sem er hvaa 60-100 krakkar eða eitthvað,hee og ef einhver einn af
öllum þessum krakkaskrímslum giskaði á rétt þá mun hann ekki mæta í
skólann á föstud = frí ! ég tippaði á 31-27 ! en það voru nú skoruð
aðeins fleiri stig í dag,en það væri eiginlega alltof fyndið ef
engin af okkur hefði giskað á 36-30.
Við stelpurnar skelltum okkur á Footloose síðasta fimmtudag,ýkt
skemmtilegt og við skemmtum okkur alltof vel,hehee...ég er
nefnilega svo agalega fyndin.
Lengsti skóladagurinn minn var í dag 8-18:00 ! hee,var í
skólanum til 4 og horfðum svo á leikinn á sal,smá tilbreyting frá
því að vera með mömmu að fara á tagum hér heima yfir þessu !
hehehe...
Ásdís þarf ég að fara að taka stjórnina hjá mömmu þinni og pabba
við að ala þig upp ? þetter allt að fara til fjanans...mætir bara
með gat í tugunni,hvert er heimurinn að stefna? hahaa..
 
ég veit ekki hvort ég ráði við
þetta ;/
jess,fimmtudagur á morgun..elska fimmtudaga,þá er nefninlega svo
agalega stutt í helgina,og ég elska helgi,mjeehe...ég er að fara að
passa á laugardaginn hjá brósa,alltof langt síðan ég hef gert
það,svo það er alveg komin tími á mig í þeim málum =)
búin að vera á fundi í allt kvöld,í sambandi við þetta
ungmennahús okkar,hee ! jájá,það kemst í notkun einn daginn,segjum
það bara : )
Held ég fari að skella mér í háttinn....

-Gærdagurinn er búinn...lfiðu
núna..eins og það sé enginn morgundagur
!
ELSKIÐ FRIÐINN
! heha.
»
17.01.2007 00:35:39 / loverose
Oj,þessi síða er alveg algjörlega að mygla...fæ alveg nettan
hroll þegar ég kíki inná hana,líklega vegna þess að ég er búin að
vera agalega löt að gera eitthvað hér,en ég skal reyna fara bæta
það eitthvað. díll ?
Litla vetrarríkið sem er skollið á okkur suðurnesjabúana og
fleiri landsmenn,man ekki eftir svona miklum snjó nema fyrir mörgum
árum,ég er samt alveg búin að vera fýla þetta,eða þú
veist..kostir&gallar,ekkert meira kósý en að vera bara inni í
náttfötunum,kíkja svo aðeins útum gluggann og sjá bandbilað
veður,hehe,þetta er fínt í nokkra daga..glatað að geta samt lítið
farið útaf snjó ! En við nýttum okkur þetta dýrindisveður um daginn
og skelltum okkur í snjókasst,haha Ég&Ásdis vs.
Fannar,Davíð,Rúnar og Diddi..urðum að hafa liðin sanngjörn þið
skiljið (; en þetta endaði þannig að Ásdís braut rifbeinin
sín,greyið.
Tók því agalega rólega um helgina,gerði lítið sem ekkert...kíkti
aðeins heim til Davíðs á föstudaginn og svo bara rúnta með
geðsjúkri manneskju.... "og svo eftir að ég beit í fokkings
samlokuna hennar Ástrósar" hahah,Siiillý billí ! Á laugardaginn fór
ég ekki út úr húsi,tók popppunktsGame með gamla liðinu og
horfði svo á one tree hill restina af nóttinni...mm talandi um One
tree hill,fékk vægast sagt æði og kláraði eina seríu á svona
5.dögum,haha það sem maður lifir sig inní þetta,féllu tár í
hverjum einasta þætti hjá mér og stundum grét ég
bókstaflega,hee.
Ég held ég þjáist af svefnveiki þessa dagana...get sofið
eeendalaust,og það er ekkert grin,ef ég byggi ein væri ég líklegast
sofandi núna ...síðan í síðustu viku,heheee.
Ég er farin......að..sofa,hah.
blebla.
»
08.01.2007 23:42:44 / loverose
Jæja,þá eru jólin formlega
búin..þrettándinn var á laugardaginn og fór ég í fyrsta skipti
ekki í langan tíma á brennuna,en náði nú samt að sjá
flugeldasýninguna..jájá,sá hana alla leið frá Sandgerði,allt
hægt greinilega þarna í sveitinni hjá Hjördísi og
co,hehe.
Ásdís varð 18.ára á sunnudaginn,sem er by the
way alltof mikið,nú má hún allt,var það ekki annars ? Hehe...hún
nýtti sér allavega tækifærið og fór beint í spilakassann,þetter
semsagt allt að fara til helvíts ! En jæja við/hún veit ekki hvort
það var,hehe héldum uppá afmælið á föstudaginn,og það var haldið
uppá það í sveitinni,Stafnesi nánar tiltekið,það var ótrúlega
gaman,stelputeiti vægast sagt,nema það birtust 3 Rvk
drengir þarna,og skemmdu semsagt stelpuþemað,heha ..en ef ég
hefði verið þeir þá hefði ég aldrei þorað að banka uppá,meina ef
þið væruð að rúnta einhverstaðar í óbyggðum og sæuð svo allt i einu
hús uppljómað og allt fullt af biluðum stelpum í glugganum,munduði
ekki halda að þetta væri vægt geðheimili og hlaaaupa í burtu ? ég
hugsa ég hefði gert það ! haha.

Sporin voru heldur betur tekin í sveitasælunni
;D
Vorönninn hófst formlega í dag,er nokkuð sátt
með töfluna mína,það voru bara stuttir tímar í morgun,og svo byrjar
þetta allt á morgun,og ég til 16:15 ..vehei ! Fór í bókabúðina í
dag,keypti þar 4.bækur hinar allar þarf ég að kaupa í skólanum,og
jájá þessar 4.bækur kostuðu 10.000 og eitthvað krónur,og ég fékk
bara 5000 kall inneign,þar sem þau tóku ekki við öllum bókunum
mínum,ii. veit allavega að ég á eftir að kaupa tvær mjög dýrar
bækur í viðbót,blebla !
Eh,þreytan alveg farin að segja til sín
núna..þar sem ég er engan veginn búin að vera vön að vakna kl
7,hehe.
Ætla henda inn eitthvað af myndum,þið kíkið á
það..þegar þið eruð búin að kvitta ; )
Thanks.
»
29.12.2006 22:24:06 / loverose
úllamúlla þessi síða er að deyja út.....
En allavega,hef ekkert bloggað eftir jólin...þau voru bara
yndisleg hjá mér ,hehe nenni engan veginn að fara segja frá
þeim dag frá degi,gerðist bara allt þetta venjulega,fara með
kort+pakka,borða,opna pakka,spilakvöld hjá Fannsa og
co,bílskúrsheimsóknir til Hjálmar,jólaboðin og allur þessi pakki (:
En vá ég get ekki sagt annað en að ég sé búin að ná að slappa
verulega af í þessu fríi..sef endalaust,sem er fínt..elska að sofa
(; hehee..
Það eru víst bara um 2.dagar eftir af þessu ári...frekar
skrítið,en þetta ár er búið að vera ótrúlega fínt hjá mér !!!
Ætla koma með smá svona myndablogg frá árinu sem er að
líða...taka bara nokkrar myndir úr hverju albúmi hjá mér : )
Það voru haldin nokkur afmæli
þetta árið.......
 
Héldum uppá 17.ára afmæli
Ásdísar...
  
...og held það hafi algjörlega
verið afmæli ársins ;D aaalltof gaman.
  
Veigar&Albert urðu tvítugir í
Janúar (vantar mynd af veigar) =/
 
...svo var haldið uppá afmælið hjá
Röggu og Fanney í febrúar =)
  
,,,Karen Helga varð líka 17.ára í
febrúar ; )
 
Sissi bróðir hélt uppá 30.ára
afmælið sitt...
  
...þar var agalegt stuð ;D
hehe..
  
...svo var afmælið hans Rúnars það
síðasta á árinu(; -sem ég á myndir af allavega,he
Svoooo var eitthvað af teitum
þetta árið....
  
-
  
-
 
-

-
  
-
Sumariiið var náttúrulega best í
heimi eins og alltaf...
  
-
   
-
  
....fórum í bústað til Guðbjargar
=D
  
...Færeysku dagarnir voru
geggjaðir ;p
  
ooog innflutningspartýið
;D
 
Reynir komust í 1.deild...og það var haldið uppá það
;D
  
Svo var farið til Búlgaríu...held það hafi toppað sumarið
(;
Er líka búin að setja inn myndir frá jólunum..ef þið
voruð ekki búnað skoða
(:
eeen þetta tók alveg sinn tíma þannig að þið skuldið mér
kvitt í skoðanir !
;D
Takk fyrir árið sem er að líða og skemmtið ykkur
vel á gamlárs
;D
»
20.12.2006 00:25:23 / loverose
Voðalega miklar fréttir úr Sandgerði í
dag,allavega var lítið talað um annað í fréttunum,huge skip sem
strandaði bara hér rétt fyrir utan,einn lést því miður ;/ heyrði
agaleg sírenuhljóð við morgunverðaborðið og fékk alveg
stórann hnút í magann,og jáá við
morgunverðaborðið,heehe ég fór semsagt að vinna í morgun
hjá pab,og aftur á morgun,svosem fínt þar sem það eru svo miklir
vitleysingar að vinna þarna,að maður getur ekki annað en brosað
allan daginn,hehe..og ennþá betra að ég verð bara fram að hádegi
á morgun,þarf nefninlega að henda mér í klippingu,guð hvað mér
hlakkar til,komin með ógeð eitthvað af hárinu mínu,he.
Röflaði hér í síðustu færslu um hræðslu mína við að fá
einkunirnar,tjaa giskaði næstum því á rétta tölu..en 2.föll urðu
það,náði þar af leiðandi 5. af 7.áföngum sem er að sjálfsögðu
ekkert gott,en ég náði þó þessum fimm,hugga mig á því hehee ;
)

Ástrós Aþena,litla mús í jólasnjónum ;*
Fór í höfuðborgina í dag með Ásdísi og Hjálmari,kaupa
jólagjafir,og það þurftu náttúrulega allir að fara á sama tíma og
við að versla,vesen á þessu liði..engin helv stæði og svona
vitleysa,hehee....þannig þetta endaði allt með því að við þurftum
að taka hjúds teygjustökk til að komast í Kringluna! Og greyið
Hjálmar,hann sér bara straight away,og allt fullt af bílum fyrir
honum hehaehe ;D
Buhu..Fanney kom áðan,kveðja mig..hún og Robbi víst að fara til
Kanaríeyja í fyrramálið og verða yfir jólin og áramótin,verður
hálf fáránlegt að hitta hana ekkert yfir þennan tíma ;/ en hún
verður bara að sætta sig við koss frá mér í gegnum síma,hehe ;*
Er að henda inn myndum frá helginni,en kvittiði áður en þið
farið að skða ; ) hehe.
Njótið svo jólaundirbúningsins..svo
agalega gaman allt ;D
»
18.12.2006 01:35:11 / loverose
húff hvað mér er farið að hlakka til jólanna,vika í þau,sem er
reyndar alveg fáránlegt..þetta ár gjörsamlega búið að fljúga
áfram ! En ég held ég hafi aldrei verið eins róleg yfir þessu öllu
saman,nenni engan veginn að vera stressa mig á þessu,fólk á ekki að
vera stressa sig yfir jólunum..en já ég semsagt á eftir að kaupa
allar jólagjafirnar sem eru alveg 8.eða eitthvað,svo á ég eftir að
finna mér jólaföt og svona ýmislegt... heeee (fæ reyndar smá sting
í magann þegar ég skrifa þetta svona niður,hehe)
En nenni ekki að hafa áhyggjur af þessu.....annað sem ég hef
áhyggjur af núna...prófsýni og einkunnir á morgun,ég er
skíthrædd,hef aldrei verið svona hrædd um að vera að falla í
mörgum fögum,hef aldrei þurft að lenda í því að fara í sama
áfangann aftur en það getur víst komið fyrir alla,ég giska á
3.föll,miðað við hvernig mér fannst mér hafa gengið,það er samt
slæmt ;/ æ-i......
Helgin: hún var fín ! Á föstudaginn var próflokafagnaður,hehe
við byrjuðum á að kíkja heim til Davíðs í agalegt strákateiti,síðan
var haldið í Keflavík á Hpunktinn,mér fannst ýkt gaman,Fannar
var það ekki? heehaa,hann var án efa fulli gaurinn þetta kvöld,og
ja ég og Ásdís eigum inni dans vinur! Sjáiði þetta ekki
fyrir ykkur,agalega mikið fullur gaur sem talaði gjörsamlega alla
leiðina frá Sandgerði í Keflavík sem endar ferðina einhvernveginn
svona "Ég er svo skemmtilegur af því ég er svo fullur,en ég bara er
ekki svona fullur af því ég er skemmtilegur" jáh ýmindið ykkur
þetta sagt af Fannari soldið mikið hratt,ég og Davíð táruðumst
allavega ;D hahaaa..
Í gær svaf ég svo náttúrulega eitthvað fram eftir,eins og í
dag,agalega erfitt að koma svefn-rútínuni í lag aftur,hee ...fór
svo til ömmu og afa og skrifaði á jólakort fyrir þau (: Var svo
búin að ákveða að taka því bara rólega um kvöldið,en þessar stúlkur
mínar hafa svona agaleg áhrif á mig að ég endaði með
þeim í Keflavík,byrjuðum reyndar á teiti hjá Aroni,en já
það var vægast sagt hundleiðinlegt í kef,lítið af fólki svo
ég og Ásdís fórum bara heim um 4,og guð hvað við erum
fyndnar "þetter sko handa frænku minni" ;** hahaa..
Tók eitthvað af myndum í gær,eða ekki ég,alltaf einhverjir aðrir
með vélina,hehe..en nenni ekki setja þær inn núna,á morgun líklega
bara !
Hafið það gott og hættum þessu stressi =D
pís ád.
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
|